Skipulag

Stjórnskipulag félagsins

  • Reginn ehf. er móðurfélag samstæðunnar. Í félaginu fer fram dagleg stjórnun á samstæðunni, samræming og umsjón með starfsemi dótturfélaga.
  • Eignarhaldsfélög eiga hlutabréf í dótturfélögum. Engin dagleg starfsemi er í eignarhaldsfélögunum.
  • Rekstrarfélög fasteigna eiga fasteignir og reka, afla tekna með leigu og starfsemi, borga af lánum tengdum fasteignunum.

Kostir þess að skipta samstæðunni upp í þrjú þrep með mörgum lögaðilum eru eftirfarandi:

  • Skýr aðgreining eininga fæst með þessum hætti og ákveðinn sveigjanleiki, sérstaklega þegar kemur að sölu og umsýslu fasteigna eða félaga.
  • Aðgreining með fleiri lögaðilum og þrepaskiptingu eykur möguleika á gegnsæi.
  • Með eignarhaldsfélögunum verður til ákveðin aðgreining, gefur möguleika á sér ársreikningum fyrir hvern flokk fasteigna, aðgreining við sölu og rekstur.
  • Með tilkomu eignarhaldsfélaga gefst kostur á að hafa ábyrgðir með þeim hætti að sala eigna er einfaldari.


Reginn ehf.
Kt. 630109-1080
Borgartún 25
105 Reykjavík
Sími 512 8900
reginn@reginnehf.is