Um Regin

Reginn ehf. er dótturfélag Landsbankans. Félagið er að öllu leyti í eigu Eignarhaldsfélags NBI ehf. sem fer með eignarhald helstu dótturfélaga Landsbankans. Reginn tók til starfa vorið 2009 og er ætlað að fara með eignarhald á þeim eignum sem bankinn mun eignast í kjölfar fullnustuaðgerða eða annars konar skuldaskila. Félagið ber ábyrgð á umsýslu og ráðstöfun fasteigna eða fasteignafélaga. Þær eignir sem um ræðir eru uppbyggingar- og þróunarverkefni, skipulögð byggingasvæði, umfangsmeiri íbúðarbyggingar í vinnslu og byggingu, umfangsmeiri fullgerðar íbúðarbyggingar, ófullgert atvinnuhúsnæði, fullgert atvinnuhúsnæði, fasteignaþróunarverkefni og eignarhlutir í fasteignarfélögum.

Tilgangur félagsins er sá að annast umsýslu og rekstur fasteigna og fasteignafélaga. Í því felst að félagið mun m.a. leigja út og eða selja fasteignir, auk þess að vinna að uppbyggingu einstakra verkefna. Félagið hefur stofnað dótturfélög sem sérhæfa sig í einstökum greinum s.s. atvinnuhúsnæði, íbúðarhúsnæði og þróunarverkefnum.

Gert er ráð fyrir að félagið muni m.a. koma að uppbyggingu þróunarverkefna og áframhaldandi framkvæmdum á ókláruðum verkefnum. Félagið leitast við að bjóða út hvers kyns þjónustu tengdri rekstri fasteigna. Sama á við um stærri framkvæmdir við fasteignir félagsins. Öll stærri verk verða boðin út sérstaklega.

Markmið félagsins er að varðveita og hámarka þau verðmæti sem bundin eru í fasteignum og fasteignafélögum. Félagið mun eins fljótt og kostur er selja einstakar eignir eða einstök félög á markaði. Félagið leggur áherslu á að söluferlið verði sem aðgengilegast fyrir markaðinn.

Hægt er að nálgast starfsreglur félagsins um meðferð, umsýslu og ráðstöfun fasteigna og fasteignafélaga hér á vefnum.

Stjórn  |  Starfsmenn  |  Skipulag  |  Starfsreglur  |  Hafðu samband

Nafnið Reginn

Reginn er fornt dvergsheiti og skylt fleirtöluorðinu regin sem merkir ráð eða áætlun og er einnig haft um goð og goðmögn.

Í íslenskum fornbókmenntum er heitið þekktast sem nafn smiðsins Regins en hann gegnir lykilhlutverki í frásögninni af Sigurði Fáfnisbana og gullinu á Gnitaheiði eins og hún er rakin í eddukvæðum (Reginsmálum og Fáfnismálum), í Snorra-Eddu og í Völsungasögu.

Snorri segir frá því þegar þrír æsir, Óðinn, Loki og Hænir, komu að á nokkurri þar sem otur hafði veitt sér lax. Loki drepur oturinn en hann reynist vera sonur bónda nokkurs sem Hreiðmar heitir og er fjölkunnugur. Auk Oturs átti bóndi synina Fáfni og Regin. Hreiðmar krefur æsina um oturgjöld og fær gnótt gulls. Þeir synir hans vilja nú fá sinn skerf gullsins í bróðurgjöld og þegar faðir þeirra sinnir því í engu drepa þeir hann. Síðan krefst Reginn þess að bræðurnir skipti með sér gullinu en Fáfnir segir honum að snauta burt ef hann vilji ekki hljóta sömu örlög og faðir þeirra.

Fáfnir heldur síðan á Gnitaheiði og leggst á gullið í ormslíki en sögunni víkur til Sigurðar, kappa af ætt Völsunga, sem elst upp hjá móður sinni við hirð Hjálpreks konungs. Þar er þá kominn Reginn sem verður fóstri og kennari Sigurðar.

Í Konungsbók eddukvæða segir að Reginn hafi verið „hverjum manni hagari og dvergur um vöxt … vitur, grimmur og fjölkunnigur“. Hann gerir Sigurði sverðið Gram og eggjar hann að vega Fáfni. Þeir fara nú á Gnitaheiði þar sem Sigurður drepur orminn en Reginn sker úr honum hjartað og biður Sigurð að steikja yfir eldi. Það gerir hann, en þegar hann snertir hjartað til að athuga hvort það sé fullsteikt, brennir hann sig og bregður fingrinum upp í sig. Þegar blóð Fáfnis kemur þannig í munn honum skilur hann mál fugla sem sitja í trjánum og ræða um hvernig Reginn sitji á svikráðum við Sigurð og ætli að drepa hann svo hann eignist gullið einn. Sigurður bíður þá ekki boðanna, verður fyrri til og banar Regni en tekur gullið.

Það er því óhætt að segja að sakleysislegar laxveiðar hafi dregið langan dilk á eftir sér og að sá Reginn sem birtist okkur í hinum fornu kvæðum og sögum sé ekki einföld persóna. Hann er smár en knár, handverksmaður góður og séður vel. Eins og nafnið bendir til er hann ráðsnjall og útsjónarsamur þótt hefndarþorstinn og löngunin í gullið marki hann eins og aðrar persónur sögunnar og verði honum að falli að lokum. 


Reginn ehf.
Kt. 630109-1080
Borgartún 25
105 Reykjavík
Sími 512 8900
reginn@reginnehf.is