Söluferli
Fyrirtækjaráðgjöf NBI mun stýra og annast kynningu og sölu, stærri og umfangsmeiri eigna félagsins, í samræmi við meðfylgjandi feril. Sala minni eigna fer að jafnaði fram hjá völdum fasteignasölum og sala einstakra verkefna getur eftir atvikum farið fram beint frá Regin.
A. Undirbúningur félags undir sölu
- Verðmat á félaginu framkvæmt
- Sölugögn undirbúin
- Framkvæmd áreiðanleikakönnunar (e. Vendor Due Diligence)
- Markmið með sölunni ákveðið
- Kynning á fyrirhuguðu ferli á heimasíðu félagsins
B. Tilkynning um söluferli á félagi
- Opinber auglýsing
- Lýsing á fyrirhugaðri sölu félags
- Hvaða skilyrði fjárfestar þurfi að uppfylla til að geta tekið þátt í söluferlinu
- Hvar fjárfestar geti nálgast sölugögn og tilboðsleiðbeiningar
- Kynningar fyrir tengda fagaðila (Asset & Facility Management)
C. Hæfnismat áhugasamra kaupenda
- Uppfylla skilyrði um fagfjárfesta (Lögfræðiráðgjöf Landsbankans)
- Fjárhagslegur styrkleiki
- Samkeppnissjónarmið
- Rökstuðningur / Kynning á niðurstöðu
D. Fyrsta stig söluferlis
- Afhending fyrstu sölugagna
- Afhent þeim aðilum sem uppfylla skilyrði söluferlisins
- Undirritun trúnaðaryfirlýsingar
- Móttaka óbindandi tilboða á grundvelli fyrstu sölugagna
- Val á tilboðsgjafa/gjöfum til áframhaldandi þátttöku
- Rökstuðningur / Kynning á niðurstöðu
E. Annað stig söluferlis
- Afhending ítarlegri sölugagna
- Drög að kaupsamningi afhent
- Áreiðanleikakönnun framkvæmd af hálfu tilboðsgjafa
- Móttaka endurnýjaðra tilboða
- Val á tilboðsgjafa/gjöfum til lokaviðræðna
F. Lokastig söluferlis
- Viðræður um útfærslu kaupsamninga
- Undirskrift bindandi kaupsamnings
- Greiðsla fyrir andvirði hlutafjár
- Hlutafé skiptir um hendur
- Rökstuðningur / Kynning á niðurstöðu
